Bergrós Ásta heiti ég !


Ég fæddist í bænum Jaén á Spáni þann 5. júní 2007. Ég var 14 merkur og mældist 51 sentimeter með dökkt hár og dökk augu.

Foreldrar mínir eru þau Katrín, fædd og uppalin á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, og Guðmundur, fæddur og uppalin í Steinholti á Austur-Héraði.
Þessa dagana hýsa Gunnarsstaðir lögheimili okkar en við búum sunnan hafs, nánar tiltekið á Spáni.
Pabbi minn hefur þann starfa þessa dagana að vera heima hjá mér og er samhliða því í fjarnámi en mamma mín er í námi við háskólann hérna í Jaén.




Þú ert gestur nr. 10389